Svíþjóð fór illa að ráði sínu og tapaði fyrir Slóveníu, 27:25 í C-riðli EM í handbolta í gær. Vid Kavtcnik og Luka Zvizeg skoruðu mest fyrir Slóvena, 7 mörk hvor. Öll mörk Kavtcnik komu úr vítaköstum, og á vítapunktinum var hann með 100% skotnýtingu. Fjórir leikmenn skoruðu fimm mörk fyrir Svía, þeir Dalibor Doder, Jonas Källman, Lukas Karlsson og Niklas Ekberg.
Pólverjar lögðu svo Þjóðverja að velli með 27 mörkum gegn 25. Pólverjar voru sterkari aðilinn í leiknum og vel að sigrinum komnir. Stórskyttan Karol Bielecki var markahæstur í pólska liðinu með 6 mörk, en Lars Kaufmann skoraði sjö mörk fyrir Þjóðverja.
Pólland og Slóvenía eru því efst og jöfn með tvö stig hvort eftir fyrstu umferð í C-riðli og Þýskaland og Svíþjóð eru án stiga. Leikið er aftur í C-riðli í dag. Pólland mætir þá Svíþjóð og Þýskaland leikur við Slóveníu.