Prenta fréttSenda frétt

Bergþórshvoll á Dalvík rifinn

Bergþórshvoll á Dalvík rifinn

Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar hefur gefið leyfi fyrir því að húsið Berþórshvoll á Dalvík verði rifið, en það skemmdist mikið í eldsvoða í síðustu viku.

Bæjarráð staðfesti það á fundi í gær, með þeim fyrirvara að öll tilskilin leyfi liggi fyrir og verður húsið líklega rifið í dag. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í Bergþórshvoli. Að sögn rannsóknarlögreglunnar á Akureyri hefur ekkert komið fram um hver eða hverjir gætu hafa verið að verki og enginn er grunaður um verknaðinn. Búið sé að ræða við fjölda fólks, en ekkert hafi komið fram sem skýri málið. Rannsókn sé því haldið áfram.

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiþjónusta