Beint í leiðarkerfi.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag þjóðkirkjuna til að greiða séra Sigríði Guðmarsdóttir rúmar 1,6 milljónir króna í bætur vegna brota á jafnréttislögum.
Dómurinn komst að því að kirkjan hefði brotið jafnréttislög árið 2003 þegar skipað var í embætti sendiráðsprests í Lundúnum. Sigríður sótti um embættið ásamt karlmanni sem fékk stöðuna, en valið var í samræmi við niðurstöðu hæfnisnefndar sem lagði mat á umsækjendur. Sigríður leitaði þó til jafnréttisnefndar þjóðkirkjunnar og taldi nefndin að jafnréttisáætlun kirkjunnar hefði ekki verið virt.
Þá höfðaði Sigríður mál gegn biskupi Íslands fyrir hönd þjóðkirkjunnar og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu, sem Hæstiréttur viðurkenndi 2006. Enn var höfðað mál og nú krafist 15 milljóna króna bóta. Sigríði voru í Héraðsdómi í dag dæmdar ríflega 1,5 milljónir, mismunur þeirra kjara sem Sigríður hefði notið sem sendráðsprestur í Lundúnum og þeirra sem hún fékk sem sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli.
frettir@ruv.is