Beint í leiđarkerfi.

Lán til barna vegna kaupa á stofnfjárbréfum í sparisjóđnum Byr í hitteđfyrra voru ólögleg. Ekki lá fyrir leyfi sýslumanns og ţví hefur Íslandsbanki ákveđiđ ađ fella skuldirnar niđur. Lántökurnar voru ţó í öllum tilfellum ađ beiđni forráđamanna barnanna segir bankinn.
Haustið 2007 var stofnfé í Byr aukið verulega. Þáverandi eigendum stofnfjár var boðið að auka sinn hlut, meðal annars tólf ára barni úr Hafnarfirði. Viðskiptablaðið vakti athygli á þessu í morgun.
Að beiðni foreldranna fékk barnið milljónir að láni hjá Glitni til stofnfjárkaupa. Bréfin sem að veði voru, eru nú verðlítil. Nú er lánið hjá Íslandsbanka, en fjölskyldan hefur ráðið Hróbjart Jónatansson lögmann. Hann segir að börn fullnægi almennt ekki útlánareglum banka sem geri ráð fyrir að lántakandi sé fjárráða og hafi tekjur og eignir til að endurgreiða lán til bankans.
Hjá sýslumanninum í Hafnarfirði fengust þær upplýsingar, að í þessu tilfelli, hafi verið veitt leyfi fyrir því að skrá stofnfjárbréfin á barnið, en, að skýrt hafi verið að í leyfinu fælist ekki heimild til lántöku, til þess að skuldsetja barnið.
Í yfirlýsingu frá Íslandsbanka segir að í öllum tilvikum hafi foreldrar eða forráðamenn umræddra barna átt frumkvæði að lántökunni og komið fram fyrir hönd þeirra gagnvart Glitni. Við athugun hjá bankanum hafi komið í ljós að ekki lá fyrir samþykki sýslumanns. Því séu lánasamningarnir allir ógildir og skuldin verði ekki innheimt. Bankinn segist að auki harma þetta mál.
frettir@ruv.is