Beint í leiðarkerfi.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Norðurlöndin harðlega í ræðu á þingi Norðurlandaráðs í dag fyrir að hafa ekki staðið með Íslandi í deilunum um Icesave.
Bjarni sagði að Íslendingar hefðu alltaf litið á Norðurlöndin sem fjölskyldu sína og inntakið í norrænni samvinnu væri að standa saman. Íslendingar hefðu hins vegar upplifað það síðasta ár að standa nánast einir á móti öllum heiminum. Norðurlöndin hefðu tekið undir skilning Evrópusambandsins um ábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna og því ekki afgreitt lán sem þau hefðu lofað Íslendingum fyrr en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði lagt blessun sína yfir lánveitingarnar.
Aðeins Færeyingar hefðu lánað Íslendingum án skilyrða. Bjarni sagði þetta í fyrirspurnartíma Frederiks Reinfeldts, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem nú er forseti Evrópusambandsins. Bjarni spurði Reinfeldt hvað hefði gerst, hver væri lögfræðilegur grundvöllur ákvörðunar norrænu ríkjanna.
Reinfeldt sagði í svari sínu að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væri sú stofnun sem gæti komið þjóðum til aðstoðar þegar að kreppti. Aðstoð við þjóðir í vandkvæðum væri ekki tvíhliða heldur í gegnum alþjóðastofnanir eins og Gjaldeyrissjóðinn.
frettir@ruv.is