Prenta fréttSenda fréttHlusta á hljóðskrá

Leggur til sameiningu Norðurlanda

Leggur til sameiningu Norðurlanda
Forsætisráðherrar Norðurlandanna.

Sćnski sagnfrćđingurinn og samfélagsrýnirinn Gunnar Wetterberg stingur upp á ţví ađ norrćnu ríkin fimm sameinist og myndi nýtt ríki undir krúnu Margrétar Ţórhildar Danadrottningar.

Í grein í dagblaðinu Dagens Nyheter í dag í tilefni bendir Wetterberg á að hagkerfi Norðurlandanna yrði það tíunda stærsta í heimi, stærra en hagkerfi ríkja eins og Rússlands og Brasilíu.

Sameinuð Norðurlönd gætu því haft mikil áhrif á alþjóðavettvangi og innan alþjóðastofnana á borð við Evrópusambandið. Wetterberg, sem skrifar grein sína í tilefni Norðurlandaráðsþingsins sem hefst í Stokkhólmi í dag, minnir á fordæmi, þegar ríkin voru sameinuð undir merkjum Kalmarsambandsins frá 1397 fram yfir 1500.  

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiţjónusta