Hátt í 500 brottreknir bankastarfsmenn hafa fengið vinnu hjá ríkisbönkunum, MP-banka og skilanefndum gömlu bankanna að sögn Friðberts Traustasonar, formanns Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.
1500 bankamenn misstu vinnuna á tímabilinu frá því í apríl í fyrra til júní síðastliðins og segir Friðbert að atvinnuhorfur bankamanna hafi batnað til muna, nú séu innan við 150 bankastarfsmenn á atvinnuleysisskrá,
Friðbert segir algengt að laun sérfræðinga hjá bönkunum hafi lækkað um 15-50%. Af þeim 4-500 sem aftur hafi fengið vinnu sé um þriðjungur hjá skilanefndum gömlu bankanna. Það að auki vinni margir tugir útlendinga að á vegum skilanefndanna gömlu bankann þriggja við að gera sem mest úr eignum þeirra, flestir á vegum Landsbankans eða í kringum 70 manns.