Prenta fréttSenda frétt

Kaupfélagið láni fyrir skóla

Kaupfélagið láni fyrir skóla
Skagafjörður. Mynd: Wikipedia/debivort

Meirihluti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Kaupfélag Skagfirðinga um fjármögnun og byggingu lokaáfanga Áskóla á Sauðárkróki. Samkvæmt skýrslu KPMG er áætlaður byggingarkostnaður nýbyggingar og nauðsynlegar endurbætur á eldra húsnæði metinn á nærri 850 milljónir króna. Kaupfélag Skagfirðinga hefur boðið sveitarfélaginu að lána sveitarfélaginu fyrir framkvæmdunum. Tillaga um að ganga til viðræðna við kaupfélagið var samþykkt með átta greiddum atkvæðum. Bjarni Jónsson fulltrúi Vinstri grænna í sveitarstjórn sat hjá. Hann telur að sveitarfélagið ráði ekki við þær fjárskuldbindingar sem stækkun skólans fælu í sér.

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiþjónusta