Beint í leiðarkerfi.

Forráðamenn vefsíðunnar kjosa.is ganga í dag á fund forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, og afhenda honum undirskriftir þeirra sem vilja að hann staðfesti ekki lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna.
Nú skömmu fyrir fréttir höfðu ríflega 9100 manns sett nöfn sín á þennan lista. Markmið samtakanna er að lögin verði borin undir þjóðaratkvæði. Lögin hafa enn ekki verið send til skrifstofu forsetans frá forsætisráðuneytinu.
frettir@ruv.is