Prenta fréttSenda frétt

Fólk hamstraði vín og tók bensín

Fólk hamstraði vín og tók bensín
Örtröð á bensínstöð Orkunnar í Spönginni í Grafarvogi Reykjavík 28. maí 2009. Mynd: Rúnar Snær Reynisson.

Mikið var að gera í Vínbúðunum í gærkvöld vegna yfirvofandi verðhækkana. Þá lá við að örtröð myndaðist við bensínstöðvar.

Vínbúðin í Skeifunni var opin til 20 í gærkvöld og þar var mun meira að gera en á venjulegu fimmtudagskvöldi. Viðskiptavinir nýtu sér tækifærið áður en verðinu verður breytt. Þeir hafa drifið sig af stað eftir að fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um hækkun áfengisgjalds um 15% sem varð að lögum í gærkvöld. Í tilkynningu frá ÁTVR kemur fram að heildsöluverð á tóbaki hækki í dag. Áfengi hækki hinsvegar ekki alveg strax því heildsölum verður gefinn frestur til að tilkynna ný verð.

 

 Verðhækkun á áfengi. Úr tilkynningu ÁTVR sem send var 28. maí 2009.

Mikið var að gera á bensístöð Orkunnar í Grafarvogi í gærkvöld og biðröð hafði myndist þegar fréttamaður átti leið þar hjá. Álagning hins opinbera á hvern bensínlítra hækkar um tíu krónur með lögunum og um fimm krónur á hvern olíulítra. Það skilar ríkissjóði samtals tveimur og hálfum milljarði á ári.

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiþjónusta