Beint í leiðarkerfi.

Opinber gjöld á bensín, olíu, áfengi og tóbak verða hækkuð með lögum frá Alþingi í kvöld. Frumvarpinu var dreift á Alþingi klukkan hálf sjö og til stóð að það fengi mjög hraða afgreiðslu.
Með lögunum stendur til að auka tekjur ríkissjóðs um 4,4 milljarða á ári til að minnka aukinn halla í rekstri ríkisins. Tekjurnar aukast um 2,7 milljarða á þessu ári.
Álagning hins opinbera á hvern bensínlítra hækkar um tíu krónur með lögunum og um fimm krónur á hvern olíulítra. Það skilar ríkissjóði samtals tveimur og hálfum milljarði á ársgrundvelli.
Olíugjald verður hækkað minna en bensíngjald til að hagstæðara verði að reka díselbíla en bensínbíla en þeir eru almennt taldir umhverfsivænni valkostur. Auk þess verður kílómetragjald lækkað um 20% en með því er vonast til að flutningskostnaður og þar með vöruverð lækki.
Álögur á áfengi og tóbak hækka um 15%, sem skilar ríkissjóði samtals um 1700 milljónum á ári.
Þessar álögur hækkuðu allar síðast um miðjan desember, síðastliðinn. Hækkanir nú leiða að sjálfsögðu til hærra vöruverðs og verðbólgu. Talið er að vegna þessa hækki vísitala neysluverðs um 0,5%.
frettir@ruv.is