Íslendingar ættu að nýta tækifærið meðan Svíar sitja í forsæti Evrópusambandsins og sækja um aðild, segir Olli Rehn, stækkunarstjóri ESB. Hann býst ekki við að nokkurt þjóðþing neiti Íslandi um aðild.
Hann hafi samúð með Íslendingum vegna efnahagskreppunnar. Hún hafi einhver áhrif en á móti komi að Ísland eigi bæði náttúruauðlindir og vel menntað fólk. Lýðræði eigi djúpar rætur hjá þjóðinni og hann segist sannfærður um að Evrópusambandsríkin myndu bjóða Ísland velkomið ef gengið yrði til samninga og þeir tækjust.
Svíar taka við forsæti Evrópusambandsins í júlí. Rehn segir að það skipti alltaf máli hver fari fyrir Evrópusambandinu. Svíar hafi sagt að þeir vilji taka við umsókn Íslendinga.