Um það bil 27% þeirra sem kusu Sjáfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi suður breyttu listanum og flestir þeirra strikuðu út nafn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Miklar líkur eru því á að hann færist niður um eitt sæti.
Endanleg niðurstaða um fjölda og afleiðingar útstrikana liggur ekki fyrir fyrr en seinna í kvöld eða á morgun. Villa kom upp í tölvukerfi sem tefur þessa vinnslu.
Þegar er ljóst að Árni Johnsen færist niður um eitt sæti á lista sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Björgvin G. Sigurðsson var líka talsvert strikaður út í því kjördæmi en hann mun þó halda fyrsta sæti sínu á lista Samfylkingarinnar. Þá var nafn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur strikað út á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður en það breytir ekki sætaskipan á listanum.
Hlutfall breyttra kjörseðla af greiddum atkvæðum var þetta:
B listi 2%
D listi 15%
F listi 3%
O listi 11%
P listi 5%
S listi 21%
V listi 9%
Að meðaltali 14%
Þeir frambjóðendur sem voru oftast strikaðir út voru:
Steinunn Valdís Óskarsdóttir 1.443
Helgi Hjörvar 657
Mörður Árnason 656
Sigurður Kári Kristinsson 403
Þráinn Bertelsson 300
Álfheiður Ingadóttir 296
Árni Þór Sigurðsson 244
Hér er átt við fjölda seðla þar sem frambjóðandi var strikaður út eða hann settur í sæti sem nýttist honum ekki við röðun í sæti.
frettir@ruv.is