Beint í leiðarkerfi.
Lögregla í Nígeríu er með í haldi geit sem grunuð er um tilraun til ráns. Nokkrir menn komu með geitina til lögreglu og gáfu þá skýringu að þeir hefðu séð tvo menn reyna að stela bíl. Þegar þjófarnir urðu mannanna varir reyndu þeir að flýja, öðrum þeirra tókst að komast undan en hinn breytti sér í geit áður en hann var gripinn.
frettir@ruv.is