Beint í leiðarkerfi.

Það á að rjúfa þing og boða til kosninga ekki seinna en um miðjan febrúar sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, við upphaf umræðu á Alþingi um vantrauststillögu formanna stjórnarandstöðunnar. Geir H. Haarde forsætisráðherra benti á að í dag væru 7 vikur frá því að Alþingi samþykkti neyðarlögin. Ríkisstjórnin væri í miðjum björgunaraðgerðum og einmitt þá sjái stjórnarandstaðan ástæðu til að ræða vantraust.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun að tillaga stjórnarandstöðunnar væri illa rökstudd og nú væri ekki rétti tíminn fyrir ríkisstjórnina að víkja. Ingibjörg Sólrún segir það kannski útlátalítið fyrir sig og Samfylkinguna að standa bara upp og boða til kosninga um það hver eigi að taka til eftir kerfishrunið. Samfylkingin standi vel í könnunum en það sé bara ekki rétt að boða til kosninga nú.
Vantrauststillaga var síðast rædd á Alþingi í október 1994. Það voru þingmennirnir Kristín Ásgeirsdóttir Samtökum um kvennalista, Finnur Ingólfsson sem þá var þingflokksformaður Framsóknar og Ólafur Ragnar Grímsson þáverandi formaður Alþýðubandalagsins sem lögðu tillöguna fram. Sú tillaga snerist um vantraust á hvern og einn ráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðissflokks og Alþýðuflokks. Tillagan var rædd en ekki kom til atkvæðagreiðslu því henni var vísað frá vegna formgalla. Davíð Oddsson sagði að tillaga bryti í bága við starfshætti Alþingis og rótgrónar þingvenjur og á þeim forsendum var henni vísað frá.
Umræðan um vantrauststillöguna í dag hefst klukkan 13.30 og verður í beinni útsendingu á Rás 2 og í Sjónvarpinu. Henni lýkur um klukkan 18.30 og strax í kjölfarið verða greidd atkvæði um tillöguna. Fulltrúar flokkanna tala til skiptis, ekki verða andsvör og ekki er enn vitað hvort atkvæðagreiðslan verður rafræn eða fer fram með nafnakalli.
Bein útsending á vef Alþingis.
Rætt var við Ingibjörgu Sólrúnu á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.
frettir@ruv.is