Prenta fréttSenda fréttHlusta á hljóðskrá

VG stærri en Sjálfstæðisflokkurinn

VG stærri en Sjálfstæðisflokkurinn

Vinstri græn mælast með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Vinstri græn hafa aldrei mælst með svo mikið fylgi í Gallupkönnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur ekki mælst minna í 15 ár.

Samfylkingin nýtur meira fylgis en aðrir flokkar, 31% myndu kjósa hana, sem er aðeins minna fylgi en í síðustu Gallup könnun. Það er hinn stjórnarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, sem tapar mestu fylgi að þessu sinni. 26% myndu kjósa hann, fimm prósentustigum færri en í síðustu könnun og tíu prósentustigum færri en í síðustu kosningum. Fara þarf aftur til júnímánaðar árið 1993 til að finna sambærilegt fylgi Sjálfstæðisflokksins í Gallup könnun.

Samanlagt styðja 57% ríkisstjórnarflokkana tvo, hins vegar styðja ekki nema 46% ríkisstjórnina. Þetta er í fyrsta sinn á þessu kjörtímabili sem stuðningur við ríkisstjórnina fer undir 50%. 

Vaxandi óánægja með stjórnarflokkanna skilar sér misvel til stjórnarandstöðuflokkanna. Vinstri hreyfingin grænt framboð nýtur stuðnings 27% kjósenda og mælist því stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Þetta er mesta fylgi sem Vinstri græn hafa mælst með á landsvísu í Gallup könnun en flokkurinn mældist með 21% fylgi í síðasta mánuði. Fylgi annarra stjórnarandstöðuflokka er nánast óbreytt frá síðustu könnun. Framsóknarflokkurinn mælist með 10%, þriðja mánuðinn í röð og Frjálslyndir með 3%.

Yrði þetta niðurstaðan fengi Samfylkingin 21 þingmann, Vinstri græn 18, Sjálfstæðisflokkurinn 17 og Framsóknarflokkurinn 7. Frjálslyndi flokkurinn næði ekki manni á þing.

Talsverður munur er á afstöðu kynjanna til flokka. 12% karla og 9% kvenna styðja Framsóknarflokkinn, 31% karla og 21% kvenna styðja Sjálfstæðisflokkinn, 4% karla og 2% kvenna styðja Frjálslynda flokkinn, 27% karla og 36% kvenna styðja Samfylkinguna, 24% karla og 31% kvenna styðja vinstri græn.

Úrtakið í könnuninni var tæplega 6000 manns, svarhlutfallið var 66%. 

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiþjónusta