Beint í leiðarkerfi.

Í sjónvarpsviðtali sem birtist í gærkveldi í norska ríkissjónvarpinu var rætt við Má Másson, upplýsingafulltrúa Glitnis. Fréttamaður spurði Má hvort rekja mætti vanda bankans til óráðsíu eigenda bankans sem hefðu tekið til sín milljónir dollara í bónus, hvort það væri ekki svo að eigendur Glitnis væru nú þessa dagana að græða stórfé á efnahagskreppu landsins, á meðan fólkið í landinu væri að tapa sínu fé. Már neitaði að svara spurningum fréttamanns og rauf að lokum viðtalið.
Í lokin á viðtalinu við Má Másson sást aðeins þar sem hann hélt á aftengdri snúrunni í hljóðnemann. Spyrill norska sjónvarpsins hafði reynt að ganga á hann um bónusa og laun til eigenda og stjórnenda bankans.
Fréttamaðurinn segir að eigendur bankans hafi tekið út milljónir dollara í bónusa og laun og grætt ótæpilega á kreppunni en nú verði ríkið að koma bankanum til hjálpar:
|
Már Másson lét taka hljóð- |
Már svarar því til að hann geti ekki svarað spurningunni og segir að hann sé fulltrúi bankans en ekki eigendanna. Og þegar enn er gengið á hann og bengt á að eigendurnir eigi bankann.
Már biður nú um að hætt sé að taka upp viðtalkið og hljóðneminn tekinn úr sambandi meðan hann útskýrir málið. Viðtalinu lauk því hljóðlaust þar sem Már stóð með snúruna í höndinni.
Hér má horfa á viðtalið í Norska ríkisútvarpinu.
frettir@ruv.is