Prenta fréttSenda frétt

Bandarísku orrustuþoturnar farnar

Bandarísku orrustuþoturnar farnar

Bandarísk flugsveit, sem sinnt hefur loftrýmisgæslu frá Keflavíkurflugvelli í þessum mánuði, hefur lokið verkefni sínu og heldur af landi brott í dag og á morgun. Um 120 bandarískir hermenn sinntu gæslunni með fjórum orrustuþotum í þrjár vikur. Á þeim tíma flugu þeir einu sinni til móts við rússneskar flugvélar í íslenska loftrýminu. Bresk flugsveit tekur við loftrýmisgæslunni í desember, næstkomandi.

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiþjónusta