Prenta fréttSenda frétt

Icelandair: Ekki fleirum sagt upp

Icelandair: Ekki fleirum sagt upp

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir félagið vonast til þess að uppsagnir flugmanna komi ekki allar til framkvæmda. Icelandair hefur sagt upp þriðjungi flugmanna á síðustu þremur mánuðum. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir þetta gríðarlega fækkun.

Guðjón bendir á að Icelandair hafi ráðið óvenju marga flugmenn á síðustu 4 árum. Hann segir það mikla blóðtöku fyrir flugfélagið að þurfa að segja upp svo mörgum. Verið sé að leita nýrra verkefna og í versta falli fari flugfélagið að ráða flugmenn aftur til sín í vor.

24 flugmönnum hjá Icelandair hefur verið sagt upp undanfarna daga eftir að félagið missti leiguverkefni í Venesúela. Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að flugmennirnir hafi starfað hjá Icelandair í rúm 4 ár. Samtals hafi 112 flugmönnum verið sagt upp hjá félaginu á síðustu þremur mánuðum. Jóhannes Bjarni segir að aldrei áður í sögu Icelandair hafi jafnmörgum flugmönnum verið sagt upp.

 


frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiþjónusta