Prenta fréttSenda frétt

Hlerað á 32 heimilum 1949-1968

Hlerað á 32 heimilum 1949-1968

Símar á 32 heimilum voru hleraðir í sex hlerunarlotum á árunum 1949 til 1968. Þetta upplýsir Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður, í dag. Hann fer fram á afsökunarbeiðni frá íslenskum stjórnvöldum.

Nú telur Kjartan sig hafa fengir nægar upplýsingar frá Þjóðskjalasafninu og ritar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann telur upp þau 32 heimili sem hann segir að sannanlega hafi verið hleruð af stjórnmálaástæðum á árunum 1949 til 1968.

Meðal þeirra sem Kjartan segir að stjórnvöld hafi hlerað eru Áki Jakobsson, alþingismaður og ráðherra, Brynjólfur Bjarnason, alþingismaður og ráðherra, Eðvarð Sigurðsson alþingismaður, Einar Olgeirsson alþingismaður, Lúðvík Jósefsson alþingismaður og ráðherra, Magnús Kjartansson ritstjóri, alþingismaður og ráðherra og Pál Bergþórsson veðurfræðingur. Kjartan Ólafsson segir í grein sinni að dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafi beðið um hleranirnar, oftast Bjarni Benediktsson. Dómarar hafi heimilað þær en ekki rökstutt sérstaklega þá niðurstöðu að veita heimild til hlerunar.

Þegar beðið hafi verið um heimild til hlerunar hafi beiðnin jafnan ekki verið rökstudd með öðru en að hætta hafi verið á óspektum. Kjartan telur að hleranirnar hafi verið pólitískar, segir þær svartan blett í sögu íslenska lýðveldisins og vill að stjórnvöld biðji þá sem þurftu að þola hleranir eða afkomendur þeirra afsökunar. Eftir að skýrsla kaldstríðsnefndarinnar kom út í fyrra sagði Bjarni Benediktsson alþingismaður að hún sýndi að gögn sem hefðu orðið til við hleranirnar hefðu einungis verið notuð af lögreglu áður en þeim hafi verið eytt.

Listi yfir heimilin 32 sem stjórnvöld létu hlera 1949-1968:

1. Arnar Jónsson og Þórhildur Þórleifsdóttir, bjuggu þá á Kleppsvegi 132 í Reykjavík

2. Áki H. J. Jakobsson og Helga Guðmundsdóttir, bjuggu í Drápuhlíð 36 í Reykjavík

3. Árni Einarsson og Hlín Ingólfsdóttir, bjuggu í Miðtúni 16 í Reykjavík

4. Björn Kristmundsson, bjó á Bollagötu 10 í Reykjavík

5. Brynjólfur Bjarnason og Hallfríður Jónasdóttir, bjuggu á Brekkustíg 14B í Reykjavík

6. Eðvarð Sigurðsson og Ingibjörg S. Jónsdóttir (móðir hans), bjuggu í Litlu Brekku

7. Eggert Þorbjarnarson og Guðrún Rafnsdóttir, bjuggu á Langholtsvegi 35 í Reykjavík

8. Einar Angantýsson og Guðríður Einarsdóttir, bjuggu á Hofsvallagötu 23 í Reykjavík

9. Einar Olgeirsson og Sigríður Þorvarðardóttir, bjuggu á Hrefnugötu 2 í Reykjavík

10. Finnbogi Rútur Valdimarsson og Hulda Jakobsdóttir, bjuggu á Marbakka í Kópavogi

11. Guðlaugur Jónsson og Margrét Ólafsdóttir, bjuggu á Hverfisgötu 104B í Reykjavík

12. Guðmundur Hjartarson og Þórdís Þorbjörnsdóttir, bjuggu á Hraunteigi 23 í Reykjav.

13. Guðmundur Vigfússon og Marta Kristmundsdóttir, bjuggu þá á Bollagötu 10 í Reykjavík.

14. Hannibal Valdimarsson og Sólveig Ólafsdóttir, bjuggu þá á Laugarnesvegi 100 í Reykjavík.

15. Haraldur S. Norðdahl og Valgerður Jónsdóttir Norðdahl, bjuggu þá á Bergstaðastræti 66 í Reykjavík.

16. Hjalti Árnason og Sigríður Friðriksdóttir, bjuggu þá á Snorrabraut 32 í Reykjavík.

17. Jens Hallgrímsson og Sigríður Ólafsdóttir, bjuggu þá á Baugsvegi 35 í Reykjavík.

18. Jón Bjarnason og Jóhanna Bjarnadóttir, bjuggu þá á Skólavörðustíg 19 í Reykjavík.

19. Kristinn E. Andrésson og Þóra Vigfúsdóttir, bjuggu 1951 í Þingholtsstræti 27 í Reykjavík en 1961 á Kleppsvegi 34 í Reykjavík.

20. Lúðvík Jósepsson og Fjóla Steinsdóttir, bjuggu þá á Miklubraut 80 í Reykjavík.

21. Magnús Kjartansson og Kristrún Ágústsdóttir, bjuggu þá á Háteigsvegi 42 í Reykjavík.

22. Páll Bergþórsson og Hulda Baldursdóttir, bjuggu þá í Skaftahlíð 8 í Reykjavík.

23. Ragnar Arnalds og Hallveig Thorlacius, bjuggu þá í Bólstaðarhlíð 14 í Reykjavík.

24. Sigfús A. Sigurhjartarson og Sigríður Stefánsdóttir, bjuggu þá á Laugateigi 24 í Reykjavík.

25. Sigurður Guðmundsson og Ásdís Þórhallsdóttir, bjuggu þá á Fálkagötu 1 í Reykjavík.

26. Sigurður Guðnason og Kristín Guðmundsdóttir, bjuggu þá á Hringbraut 88 í Reykjavík.

27. Snorri Jónsson og Agnes Magnúsdóttir, bjuggu þá á Kaplaskjólsvegi 54 í Reykjavík.

28. Stefán Bjarnason og Rósa S. Kristjánsdóttir, bjuggu þá á Sunnuvegi 19 í Reykjavík.

29. Stefán Jakobsson og Guðrún Guðjónsdóttir, bjuggu þá á Háteigsvegi 30 í Reykjavík.

30. Stefán Ögmundsson og Elín Guðmundsdóttir, bjuggu þá í Þingholtsstræti 27 í Reykjavík.

31. Úlfur Hjörvar og Helga Helgadóttir Hjörvar, bjuggu þá á Bergþórugötu 1 í Reykjavík.

32. Þráinn Haraldsson og Unnur Kristjánsdóttir, bjuggu þá í Stóragerði 10 í Reykjavík.

 

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiþjónusta