Prenta fréttSenda fréttHlusta á hljóðskrá

Sf. vill sýnilegri löggæslu og mismunandi lokunartíma

Sf. vill sýnilegri löggæslu og mismunandi lokunartíma

Reykjavík getur orðið öruggasta borg Evrópu með öruggri og sýnilegri löggæslu og mismunandi lokunartímum skemmtistaða, segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkinnar í borgarstjórn. Magnús Oddsson ferðamálastjóri, segir erlenda ferðamenn stunda skemmtanalíf miðbæjarins meira að vetri en sumri.

Í heilsárskönnun meðal erlendra ferðamanna frá 2004-2005, sem Ferðamálastofa gerir annað hvert ár, kemur fram að innan við 4% gesta segja næturlíf borgarinnar vera ástæðu þess að þeir komu til landsins. Magnús Oddsson ferðamálastjóri, segir erlenda ferðamenn ekki kvarta undan næturlífi í miðbæ Reykjavíkur. Hann segir hins vegar að mun fleiri erlendir gestir en könnunin bendi til, taki þátt í næturlífi miðbæjarins eða um fjórðungur þeirra sem hingað koma, fleiri þó að vetri en sumri.

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, er ómyrkur í máli í grein sinni í Morgunblaðinu í gær. Hann segir ásýnd miðborgarinnar og gesta hennar síðla nætur um helgar, vægast sagt ömurlega.

frettir@ruv.is

RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir

    9. febrúar 2010

    Streymiþjónusta