Beint í leiđarkerfi.

Međ nýjum kynferđisbrotalögum sem samţykkt voru á Alţingi í gćr er nánast veriđ ađ lögleiđa vćndi á Íslandi. Ţetta er mat Atla Gíslasonar hćstaréttarlögmanns.
Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður sem meðal annars hefur starfað við að gæta hagsmuna fórnarlamba kynferðisbrota, ætlar að berjast fyrir frekari breytingum á ákvæðum um kynferðisbrot í almennum hegningarlögum. Hann segir að skilgreiningar séu of þröngar í þeim lögum sem samþykkt voru í gær og að vændisákvæði séu ófullnægjandi.
Ný lagaákvæði sem samþykkt voru á Alþingi í gær gera það meðal annars að verkum að alvarleg kynferðisbrot gegn börnum fyrnast ekki. Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður sem jafnframt er varaþingmaður Vinstri grænna, fagnar því ákvæði, en segir þó að ekki hafi tekist að tryggja réttarvernd kynfrelsis.
Með vændisákvæðinu er átt við að ekki er lengur refsivert að stunda vændi heldur aðeins að hafa af því framfærslu. Hins vegar var ekki gert refsivert að kaupa vændi eins og margir höfðu farið fram á. Atli segir að þessari leið hefði þurft að fylgja félagsleg úrræði en engin slík er að finna.
Atli vill einnig sjá að kaflanum um nauðgun verði breytt, einfaldlega þannig að hver sá sem verði uppvís að nauðgun þurfi að sæta refsingu.
frettir@ruv.is