Dómur: Mátti brenna bát

Sigurður Sveinsson, útvegsbóndi frá Góustöðum í Skutulsfirði, var í morgun sýknaður í Héraðsdómi Vestfjarða af kröfum ákæruvaldsins fyrir eignaspjöll.

Sigurður Sveinsson, útvegsbóndi frá Góustöðum í Skutulsfirði, var í morgun sýknaður í Héraðsdómi Vestfjarða af kröfum ákæruvaldsins fyrir eignaspjöll.

Sigurði var gefið að sök að hafa látið færa vélbátinn Ingu Hrönn Ís af geymslusvæði við Ísafjarðarhöfn á Hauganes við Skutulsfjörð þar sem báturinn var notaður sem eldiviður í brennu á gamlárskvöld árið 2003. Málinu var áður vísað frá í héraði, fór þá alla leið upp í hæstarétt, sem vísaði því aftur í hérað til efnismeðferðar.

Allur málskostnaður féll á ríkissjóð. Sigurður Sveinsson er á níræðisaldri og hafur verið ábyrgðarmaður áramótabrennu í Skutulsfirði í 40 ár.

18. mars 2010

Streymiþjónusta