Prenta fréttSenda fréttHlusta á hljóðskrá

Saddam Hussein líflátinn

Saddam Hussein líflátinn

Saddam Hussein fyrrverandi Íraksforseti var tekinn af lífi laust eftir klukkan 3 í nótt ađ íslenskum tíma. Saddam var hengdur í fangelsi, sennilega á víggirta svćđinu í miđborg Bagdad. Aftakan var mynduđ og írösk sjónvarpsstöđ birti í morgun myndir af Saddam á leiđ til aftökunnar. Bandaríkjaher afhenti hann íröskum stjórnvöldum hálfri klukkustundu fyrir aftökuna.

Írösk sjónvarpsstöð birti
myndir af forsetanum
fyrrverandi á leið til aftöku.

Saddam Hussein fyrrverandi Íraksforseti var tekinn af lífi laust eftir klukkan 3 í nótt að íslenskum tíma. Saddam stjórnaði Írak með harðri hendi í þrjá áratugi, þar til Bandaríkjaher velti honum úr valdastóli fyrir tæpum fjórum árum.

Saddam var hengdur í fangelsi, sennilega á víggirta svæðinu í miðborg Bagdad. Aftakan var mynduð og írösk sjónvarpsstöð birti í morgun myndir af Saddam á leið til aftökunnar. Bandaríkjaher afhenti hann íröskum stjórnvöldum hálfri klukkustundu fyrir aftökuna. Engir Bandaríkjamenn voru viðstaddir. Saddam brást vel við dauðanum, og fór með trúarjátningu múslíma, áður en hermenn leiddu hann til aftökunnar.

Pílagrímar í Mekka eru æfir af reiði og segja að aftakan á mesta helgidegi múslima sé móðgun við islam. Sunnimúslimar, trúbræður Saddams eru harmi slegnir. Trúarhátíðin Eid er fórnarhátíð. Þar er minnst fórnar Abrahams, þegar hann var reiðubúinn að fórna syni sínum Ísak, að boði guðs. Súnnimúslímar segja dauða Saddams á fórnardeginum tákn um fórn Abrahams.

Bush Bandaríkjaforseti sagði í yfirlýsingu í nótt að aftaka Saddams væri mikilvægur áfangi á leið Íraks til lýðræðis en aftakan myndi ekki binda enda á ofbeldið í Írak. Margar erfiðar fórnir væru framundan.

Becket, utanríkisráðherra Bretlands, sagðist í yfirlýsingu fagna því að Saddam hefði verið dreginn til ábyrgðar fyrir hluta af mörgum og skelfilegum glæpum sínum.

Bílsprengja varð 34 að bana í sjíaborginni Kufa í Írak í morgun, og 45 særðust. En að öðru leyti eru viðbrögð þar í landi sögð lítt merkjanleg enda er mesta trúarhátíð múslíma gengin í garð.

Leiðtogi Talibana í Afganistan segir að aftakan herði múslíma í andstöðunni við Bandaríkin. Aftaka við upphaf trúarhátíðarinnar kalli á hefndir.

Í tilkynningu Páfagarðs segir að líflátið sé hörmulegur atburður, eins og aftökur séu alltaf. Hætta á hefndum vofi yfir, og kunni að verða kveikja að nýju ofbeldi í Írak.

Yfirmaður Þróunaraðstoðar Evrópusambandsins fordæmir aftökuna og segir að með því að taka Saddam af lífi, sé hann gerður að píslarvotti.

Maliki forsætisráðherra Íraks hvetur trúbræður Saddams í Baath-flokknum til að hætta andstöðu við ríkisstjórnina og hefja virka þátttöku í stjórnmálum, nú þegar leiðtoginn er allur. Aftakan merki endalok allra hugmynda um að einræðið verði endurreist. Allir sem saklausir eru af blóði annarra eigi að aðstoða við endurreisn Íraks fyrir alla Íraka.

Dóttir Saddams Hússeins, sem býr í Jórdaníu, fór í gærkvöld fram á að faðir hennar verði jarðsettur í Jemen, tímabundið, þar til Írak hafi verið frelsað og hægt verði að grafa hann þar. Íraksstjórn hefur gefið til kynna að Saddam verði jarðsettur í ómerktri gröf.

Lögmenn Saddams reyndu fram á síðustu stundu að koma í veg fyrir aftökuna. Meðal annars fóru þeir fram á að bandarískur dómari stöðvaði hana á þeirri forsendu að Saddam hefði verið stefnt fyrir rétt í Bandaríkjunum. Dómarinn sagðist ekki hafa lögsögu í málinu.

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiţjónusta