Hörður Aron, Sigríður Björg og Patrekur sigurvegarar á Torgmóti Fjölnis

Hörður Aron Hauksson Rimaskóla varð efstur á fjölmennu TORG-skákmóti Fjölnis sem fram fór í verslunarmiðstöðinni Hverafold 1-3. Hörður fékk 5,5 vinninga af sex. Sigríður Björg Helgadóttir Hamraskóla varð í öðru sæti með 5 vinninga en hún og Hörður Aron voru þau einu sem töpuðu ekki skák. Patrekur Þórsson Rimaskóla vann í flokki f. 1997 og yngri. Patrekur hlaut fjóra vinninga.

Alls tóku 32 krakkar og unglingar þátt í mótinu. Fyrirtæki við Torgið gáfu verðlaun, Foldaskálinn bauð upp á fínar veitingar og Papinó pizza stóð fyir happadrætti í lok mótsins. Snorri Hjaltason heiðursformaður Fjölnis setti mótið og lék fyrsta leikinn fyrir Norðurlandameistarann Matthías Pétursson í Laugalækjarskóla. Skákstjórar voru þeir Finnur Finnsson og Helgi Árnason frá Fjölni. Mótið var mjög vel heppnað og margir áhorfendur fylgdust með krökkunum leika listir sínar á taflborðinu.

Úrslit efstu manna:

1. Hörður Aron Hauksson 5, 5 vinninga af 6 2. Sigríður Björg Helgadóttir 5 vinninga

3.- 5. Daði Ómarsson, Dagur Andri Friðgeirsson og Matthías Pétursson 4,5 vinninga

6. - 11. Patrekur Þórsson,Gunnlaugur Steindórsson, Ómar Páll Axelsson,Steinar Sigurðarson , Jón Trausti Harðarson og Sigurður Ýmir Richter

Prentað af www.ruv.is