Vill að almenningur kaupi í HS Orku

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í dag kauptilboð Magma Energy á þriðjungshlut veitunnar í HS Orku. Fjármálaráðherra vill að félagið verði á forræði innlenda aðila. Mögulega verði leitað til almennings.

Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir að samningurinn við Magma sé góður enda Orkuveitan í þröngri stöðu. Orkuveitan á í dag þriðjungs hlut í HS Orku. Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að það hamli samkeppni. Orkuveitan þarf því að selja. Kanadíska fyrirtækið Magma Energy vill kaupa hlutinn en margir óttast að með því komist innlendar orkuauðlindir í erlenda eigu.

Stjórnvöld hafa síðustu daga reynt að mynd hóp innlendra aðila til að kaupa hlutinn. Fjármálaráðherra hitti í morgun fulltrúa Lífeyrissjóða, Grindavíkurbæjar og fleiri og gerði þar lokatilraun til þessa. Lítill tími var til stefnu, því tilboð Magma rann út klukkan fimm í dag. Fjármálaráðherra fór fram á lengri frest til að vinna áfram í málinu. Þann frest veitt Magma ekki. Guðlaugur Sverrisson segir að ráðherrann hafi fengið frest í 6 mánuði og 10 daga. Hann viti ekki hvernig sá frestur hafi verið nýttur.

Stjórn Orkuveitunnar hittist síðan klukkan eitt í dag og fór yfir eina tilboðið í hlut fyrirtækisins í HS orku. Niðurstaðan var að meirihluti stjórnar Orkuveitunnar samþykkti að ganga að tilboði Magma.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að það sé alveg á hreinu af hans hálfu og VG að þau muni gera allt sem í þeirra valdi standi til að tryggja forræði opinberra aðila yfir orkuauðlindunum og mikilvægustu orkufyrirtækjunum.

Geysir Green Energy á í dag rúmlega helmings hlut í HS Orku. Nú er rætt um að opinberir aðilar kaupi þann hlut til að tryggja áðurnefnda meirihlutaeigu opinberra aðila á HS Orku. Steingrímur segir að leitað verði eftir samstarfi við hverja sem þurfi til að ná þessum markmiðum fram. Hann meti mikils að lífeyrissjóðir og sveitarfélög séu tilbúin að skoða. Hann útilokar ekki eins og áður segir að leitað verði til almennings. Hann skorar á almenning að ráðast í þetta verkefni með stjórnvöldum.

11. mars 2010

Streymiþjónusta