8 ára drengir hanna jólafrímerki

Tveir 8 ára drengir frá Neskaupsstað, Heiðar Jökull Hafsteinsson og Konráð Kárason Þormar, hanna jólafrímerki Póstsins þessi jólin. Þeir voru hlutskarpastir í keppni sem Pósturinn efndi til fyrr á árinu. Alls bárust myndir frá 824 börnum, alls staðar að af landinu. Báðir gerðu þeir klippimynd, Heiðar Jökull gerði mynd af Stekkjastaur og Konráð af jólakettinum.

 

21. mars 2010

Streymiþjónusta