Fjórir leikir fóru fram 8. umferð í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Óvæntustu úrslitin urðu í Keflavík þar sem nýliðar Fjölnis gerð sér lítið fyrir og lögðu topplið Keflavíkur að velli, 1-2. Guðmundur Steinarsson skoraði eina mark Keflavíkur en Gunnar Már Guðmundsson og Ólafur Páll Snorrason skoruðu mörk Fjölnis. Önnur úrslit: HK-KR 0-3. Keflavík-Fjölnir 1-2. ÍA-Þróttur 1-1.
Nánari umfjöllun:
HK steinlá á Kópavogsvelli fyrir KR-ingum með þremur mörkum gegn engu. KR ingar mættu ákveðnir til leiks og Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Björgólfur Takefusa innsiglaði svo öruggan og sannfærandi sigur KR-inga á 88. mínútu.
Skagamenn og Þróttarar gerðu markalaust jafntefli upp á Skaga. Guðjón Heiðar Sveinsson skoraði gott mark á 71 mínútu leiksins fyrir ÍA en Hjörtur Júlíus Hjartarson jafnaði metin fyrir Þróttara á 80 mínútu og tryggði þeim annað stigið.
Á Laugardalsvelli báru Frammarar sigurorð af Breiðabliki með tveimur mörkum gegn einu í miklum baráttu leik þar sem aðalmarkaskorari Breiðabliks, Prince Rajcomar fékk að líta rauða spjaldið fyrir að gefa Auðunni Helgasyni olnbogaskot í andlitið. Ívar Björnsson og Heiðar Geir Júlíusson skoruðu bæði mörk frammara í fyrri hálfleik. Guðmundur Kristjánsson skoraði eina mark Breiðabliks á 45 mínútu.