Lagt verður til á aðalfundi FL Group á morgun að lækka laun stjórnarmanna um helming. Laun stjórnarformanns verða 350.000 krónur á mánuði, laun varaformanns 250.000 en laun annarra stjórnarmanna verða 175.000 krónur á mánuði. Þeir fá þó greitt sérstaklega fyrir hvern fund sem þeir sitja í undirnefndum stjórnar; 50.000 til 100.000 krónur fyrir hvern fund.