• ruv.is|

GETTU BETUR 2009 - 2010

Lið frá þrjátíu og einum skóla taka þátt í Gettu betur að þessu sinni. 


Hver hlýtur Hljóðnemann eftirsótta?

 Nýr spurningahöfundur og dómari er Örn Úlfar Sævarsson. Eva María Jónsdóttir verður spyrjandi eins og í fyrra og Ásgeir Erlendsson stigavörður. Umsjón og dagskrárgerð annast Andrés Indriðason.

 Keppt er í tveimur umferðum á Rás tvö með útsláttarsniði. Sigurliðin 15 komast í seinni umferðina og að auki lið þess skóla sem var á síðasta miðanum þegar dregið var. Í seinni umferð keppa síðan 16 lið og fara sigurliðin átta í úrslitakeppnina í Sjónvarpinu sem hefst 13. febrúar. Úrslitaþátturinn verður 27. mars.

 
Í stýrihópnum sitja af hálfu nemenda Signý Hlín Halldórsdóttir, Borgarholtsskóla, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, MR, Kristín Sveinsdóttir, MH, og Emil Gunnar Gunnarsson, Verzlunarskóla Íslands.

Úrslit viðureigna verða birt á heimasíðu á vef Ríkisútvarpsins og einnig frásagnir og pistlar um keppnina.

ÚRSLIT GETTU BETUR 2009
MR 28 - MH 25

 


Lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Hamrahlíð mætast í úrslitaviðureigninni í Gettu betur á laugardagskvöld. MR-ingar sigruðu lið Borgarholtsskóla í seinni undanúrslitaþættinum. MH-ingar lögðu lögðu lið Verzló
í fyrri þættinum.

Rétt er að vekja athygli á því að Gettu betur hefst að þessu sinni fyrr en venjulega eða klukkan 19:40 með eins konar upphitunarþætti fyrir úrslitaþáttinn. Í honum verða sýnd brot af ýmsu tagi úr Gettu betur þáttum í gegnum tíðina, allar götur frá 1986, og Ásgeir Erlendsson stigavörður tekur á móti gestum sem hafa á einhvern hátt komið við sögu í þessari vinsælu spurningakeppni.

Þessi dagskrá, sem er í beinni útsendingu að viðstöddum áhorfendum í myndveri Sjónvarpsins, rennur svo saman við úrslitaþáttinn. Milli spurninga í þeim þætti fá áhorfendur að njóta tónlistar frá MH og MR-ingum.

Hljóðneminn, verðlaunagripur Ríkisútvarpsins, er merkilegur fyrir þær sakir að hann hefur átt heiðurssess í mörgum framhaldsskólum frá árinu 1987, lengstum þó í MR. Hann er líka merkilegur að því leyti að hann var í hljóðstofu Ríkisútvarpsins á fyrstu starfsárum þess í Landsímahúsinu við Austurvöll. Margir mætir Íslendingar hafa því setið við hann og talað til þjóðarinnar.

Lið MR hefur alls þrettán sinnum hampað Hljóðnemanum. Lið MH hefur enn ekki sigrað í Gettu betur en oft komist nálægt því. Spurningin er hvort tími MH-inga sé kominn núna - eða eiga MR-ingar eftir að hefja verðlaunagripinn eftirsótta á loft í fjórtánda sinn?




Gettu betur byrjar á Rás tvö 11. janúar

Lið frá 31 skóla taka þátt í Gettu betur að þessu sinni. Dregið hefur verið um það hvaða lið mætast í fyrri umferðinni Rás 2 en fyrsta keppniskvöldið verður mánudag 11. janúar. Niðurstaðan varð þessi:

Mánudagur 11. janúar

19:30 Fjölbrautaskóli Suðurnesja
         Fjölbrautaskólinn Breiðholti

20:00 Borgarholtsskóli
         Flensborgarskólinn Hafnarfirði

20:30 Menntaskólinn við Hamrahlíð
         Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Þriðjudagur 12. janúar

19:30 Menntaskólinn í Reykjavík
         Menntaskólinn Hraðbraut

20:00 Menntaskólinn í Kópavogi
         Starfsmenntabraut Hvanneyri

20:30 Verzlunarskóli Íslands
         Framhaldsskólinn Laugum

Miðvikudagur 13. janúar

19:30
Menntaskólinn á Egilsstöðum
         Menntaskólinn við Sund

20:00 Framhaldsskólinn í A- Skaftafellssýslu
         Menntaskólinn að Laugarvatni

20:30 Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
         Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Fimmtudagur 14. janúar

19:30
Fjölbrautaskólinn Ármúla
         Fjölbrautaskóli Suðurlands, Selfossi

20:00 Framhaldsskólinn á Húsavík
         Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

20:30 Tækniskólinn
         Menntaskóli Borgarfjarðar


Mánudagur 18. janúar

19:30
Verkmenntaskóli Austurlands
         Verkmenntaskólinn á Akureyri

20:00
Kvennaskólinn í Reykjavík
         Fjölbrautaskóli Vesturlands, Akranesi

20:30 Menntaskólinn á Akureyri
         Menntaskólinn á Ísafirði

Lið Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra situr hjá og hefur keppni í seinni umferð.