Myndi þá enginn kaupa bók framar ?

Fræðilega séð gæti bókasafn keypt eina rafbók tiltekins efnis og henni væri hægt að miðla til ótölulegs fjölda með lítilli fyrirhöfn. Aldrei þyrfti að endurnýja eintakið. Yrði þetta raunin ættu æ færri erindi í bókabúð og bókaútgáfum myndi smám saman fækka.
Egill Jóhannsson hjá Forlaginu segir útgefendur og fulltrúa bókasafna um allan heim ræða málin og reyna að finna lausnir. Lausnir sem séu ásættanlegar fyrir alla, söfnin, útgefendur og rétthafa. Ein hugmyndin er sú að rafbókin verði lánuð í all nokkur skipti en síðan þyrfti bókasafnið að kaupa "annað" eintak.
Rætt er við Egil í þættinum Fyrr og nú í umfjöllun um bókasöfn. Einnig talað við Svavar Hrafn Svavarsson um fornaldarbókasafnið í Alexandríu, og Má Jónsson um safn Árna Magnússonar; þeir Svavar Hrafn og Már eru báðir prófessorar við Háskóla Íslands.
Fyrr og nú þriðjudaginn 28. ágúst 2012 kl. 13.00
Umsjón:
Hanna G. Sigurðardóttir
hannags@ruv.is
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













