Zlatan dæmdur í þriggja leikja bann

Sænski knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan á Ítalíu, hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann.

Kappinn fékk rautt spjald fyrir að slá Salvatore Aronica, leikmann Napoli, utan undir í leik liðanna á dögunum. Þetta þýðir að Ibrahimovic missir af stórleik AC Milan gegn Juventus í efstu deildinni á Ítalíu. Forráðamenn Mílanó-liðsins ætla að áfrýja niðurstöðunni. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku