Zlatan á skotskónum
Fyrst birt: 03.09.2012 09:45, Síðast uppfært: 03.09.2012 09:45

Zlatan er leikmaður sænska landsliðsins í fótbolta.
Knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimovic tryggði liði sínu, Paris St. Germain, í gær fyrsta sigurinn á tímabilinu í frönsku úrvalsdeildinni. Hann skoraði þá bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Lille.
Zlatan, sem gekk til liðs við PSG í sumar frá ítalska liðinu AC Milan, skoraði einnig bæði mörk liðsins í fyrstu umferð þegar PSG gerði 2-2 jafntefli við Lorient en síðan hefur liðið gert tvö markalaus jafntefli. Zlatan hefur því skorað öll fjögur mörk liðsins á tímabilinu, fjögur mörk í fjórum leikjum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












