Wozniacki lét þjálfarann fara
Fyrst birt: 03.02.2012 20:36, Síðast uppfært: 03.02.2012 20:36

Caroline Wozniacki er nú í fjórða sæti heimslistans eftir að hafa verið á toppnum nær samfellt síðan í október árið 2010
Danska tenniskonan Carolina Wozniacki hefur rekið þjálfara sinn, Spánverjann Ricardo Sanchez, eftir aðeins tveggja mánaða samstarf.
Wozniacki féll úr leik í átta manna úrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í síðustu viku og þótti árangur hennar ekki viðunnandi þar sem hún hefur verið nær samfellt í fyrsta sæti heimslistans frá því í október árið 2010 en hún féll niður í fjórða sæti eftir mótið í Ástralíu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








