Walker fær lán til að kaupa Iceland

Malcolm Walker, stjórnandi Iceland Foods hefur tryggt sér einn milljarð punda að láni til að bjóða í verslanakeðjuna.

Hann segir frá því í viðtali við breska blaðið Sunday Times í dag að hann hafi fengið kanadíska lífeyrissjóðinn Alberta Investment Management Corp til að fjármagna eins milljarðs punda boð í verslanakeðjuna. Walker segist vilja kaupa Iceland Foods með stjórnendateymi sínu en ella ætli hann að selja hlutafé sitt í fyrirtækinu og segja skilið við það.

Skila verður inn tilboði í verslanakeðjuna á þriðjudag og berjast fjórir hópar um hlutabréfin. Það fé sem fæst fyrir söluna á Iceland Food rennur upp í að greiða skuld þrotabús Landsbankans vegna Icesave-reikninganna. Walker á 23 prósenta hlut í fyrirtækinu og hefur forkaupsrétt á öðru hlutafé. Hann þarf því ekki að eiga besta tilboðið í sjóðinn, heldur getur hann gengið inn í hæsta tilboð lítist honum á það verð.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka