Vísað frá Kanada út af nektardansi

Íslensk kona segist þéna ágætlega á nektardansi í Kanada. Mynd: Shutterstock


  • Prenta
  • Senda frétt

Kanadísk yfirvöld vísa 22 erlendum nektardansmeyjum úr landi á næstu vikum. Í hópnum er ónafngreind íslensk kona sem segist hafa átt og rekið tvö fyrirtæki hér á landi fyrir efnahagshrunið en þéni nú ágætlega á nektardansi í Kanada.

Á vefmiðlinum CBC Windsor kemur fram að konurnar verði að fara frá Kanada innan fjögurra vikna og að fleiri muni fylgja í þeirra fótspor næstu ellefu mánuðina. Samkvæmt nýjum reglum er óheimilt að ráða erlenda nektardansara til að koma í veg fyrir misnotkun fólks í störfum sem tengjast kynlífsiðnaði í Kanada.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku