Vinir Sjonna á rauða dreglinum

Glaumur og gleði var á opnunarhátíð söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva í kvöld. Veislan var í boði borgarstjóra Düsseldorf.

Veislan var haldin í Tonhalle, þekktri tónleikahöll í borginni. Fulltrúar allra 43 þátttökuríkjanna liðu yfir rauðan dregil og fjölmiðlar sýndu því mikinn áhuga. 

Í salnum var boðið upp á veitingar og skemmtiatriði. Íslenski hópurinn sat við hlið Lenu Meyer-Landrut, sem sigraði í keppninni í fyrra og fór vel á með þeim. Bresku keppendurnir, Blue, áttu einnig að sitja hjá Íslendingunum en mættu ekki á staðinn. 

Finnski keppandinn lýst ánægju sinni með íslenska lagið og sagði það sitt uppáhaldslag í keppninni í ár. 

Vinir Sjonna fór beint úr veislunni á hótelið sem þeir gista á til að ljúka upptöku á nýju lagi. Þeir ætla á morgun að gefa lagið út, en það er útgáfa af írska sigurlaginu frá 1980, What's another year, sem Johnny Logan flutti. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku