Vill lokka fyrirtæki til Mjanmar

Verkamaður að störfum í Rangoon í Mjanmar. Mynd: Nordic Photos/AFP.

U Soe Thane, iðnaðarráðherra Mjanmar, tilkynnti í dag að ríkisstjórn landsins sem áður nefndist Búrma hyggist bjóða erlendum fjárfestum sérstök skattafríðindi. Þetta gerði hann á viðskiptaráðstefnunni í Davos.

Þar lofaði hann átta ára undanþágu frá skattalöggjöf landsins til handa þeim fyrirtækjum byggja upp starfsemi í ríkinu. Herstjórnin í Mjanmar var harðlega gagnrýnd fyrir mannréttindabrot á síðustu árum. Ný ríkisstjórn tók hins vegar við völdum í fyrra og segja stjórnvöld að erlend fyrirtæki flykkist nú til landsins með nýja starfsemi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka