Vilja lækka vaskinn af barnafötum

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að breyta lögum um virðisaukaskatt þannig að barnavörur verði færðar í neðra virðisaukaskattþrepið.

Virðisaukaskattur á þessar vörur myndi lækka úr 25,5 prósentum í 7 prósent. Telja flutningsmenn að með þessari aðgerð sé komið til móts við barnafjölskyldur sem hafi þurft að axla einna þyngstu byrðarnar í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er fyrsti flutningsmaður.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku