Vilja fyrr en aðrir á eftirlaun
Fyrst birt: 10.02.2012 19:36, Síðast uppfært: 10.02.2012 20:05

Belgískir slökkviliðsmenn mótmæla. Mynd: Nordic Photos/AFP.
Mörg hundruð slökkviliðsmenn brutu sér leið í gegnum tálma lögreglunnar og sprautuðu vatni og froðu úr slökkvitækjum á skrifstofur forsætisráðherra Belgíu í dag.
Þannig vildu þeir leggja áherslu á kröfur sínar um að þeir eigi að geta farið á eftirlaun fyrr en aðrir. Slökkviliðsmennirnir segja að starf þeirra sé svo erfitt að þeir geti trauðla verið í því fram yfir sextugt. Kröfur slökkviliðsmannanna eru þvert á áform stjórnvalda um að lengja starfsævi flestallra Belga þannig að ríkið hafi efni á að borga eftirlaun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








