Vilja að innheimtu verði hætt strax

Fjölmenni var á fundi hestamannafélagsins Fáks í kvöld þar sem fasteignagjöld á hesthús í þéttbýli voru til umræðu.
Hestamenn krefjast þess að borgin láti af innheimtu fasteignagjalda á meðan Alþingi endurskoðar lög um fasteignaskatt á hesthús í þéttbýli. Rúnar Sigurðsson, formaður Hestmannafélagsins Fáks, segir hækkun gjaldanna aðför að hestaíþróttinni.
Fasteignaskattur af meðal hesthúsi hækkaði úr rúmlega 16 þúsund krónum í 134 þúsund.
Fjölmenni mætti á félagafund hestamannafélagsins Fáks í kvöld til að ræða nýlegar hækkanirnar. Gjöldin hækkuðu um hundruð prósenta um áramót þar sem hesthúsin eru nú skilgreind sem atvinnuhúsnæði en ekki frístundahúsnæði. Borgin sendi Alþingi bréf í síðustu viku þar sem farið er fram á að lögum um fasteignagjöld af hesthúsum verði breytt. Hestamenn fagna því , en fara fram á að borgin láti af innheimtu gjaldanna meðan alþingismenn skoða málin.
S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra, sat fyrir svörum á fundinum í kvöld. Hann segir það vilja borgaryfirvalda að fasteignagjöld á hesthúsaeigendur verði aftur lækkað. Ekki sé þó hægt að hætta innheimtu fasteignagjalda á meðan Alþingi skoði málið, að mati lögmanna borgarinnar. Fullur vilji sé til þess að koma til móts við hestamenn en að þær leiðir verði að vera löglegar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








