Vilja á fund forsætisráðherra

Byggðarráð Skagafjarðar skorar á forsætisráðherra og oddvita stjórnar að svara ákalli um aðgerðir í atvinnu og byggðamálum á Norðurlandi vestra.

Ráðið fjallaði í dag um bréfaskriftir Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og forsætisráðherra. Í bókun þess segir að stjórn samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafi ítrekað óskað fundar forsætisráðherra til að ræða mjög erfiða stöðu byggða á svæðinu, án árangurs. Finnst byggðaráðinu ámælisvert að æðstu ráðamenn landsins komi þannig fram við heilu landshlutana. 45 opinber störf hafi verið flutt burt eða lögð af í Skagafirði á skömmum tíma og stefni í að fyrir árslok hafi 65 stöðugildi horfið úr héraði frá 2008. Hægt se að tengja fólksfækkun beint við stjórnvaldsaðgerðir sem bitnað hafi á svæðinu. Því þoli það enga bið að  þessu verði snúið við með samhentu átaki stjórnvalda og heimamanna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku