Vildu ekki markaðssetja orminn

Hátt í þrjúhundruð þúsund Japanar hafa skoðað myndband af Lagarfljótsorminum á rúv.is og meira en hálf milljón manna hefur skoðað myndbandið á Youtube frá því í gær. Þá hafa fréttastofur eins og Huffington post og Reuters óskað eftir frekari upplýsingum um myndbandið.
Skúli Björn Gunnarsson, stjórnarformaður markaðsstofu Austurlands sagði í viðtali í Morgunútvarpinu í morgun að fyrir nokkrum árum hafi sú hugmynd vaknað að markaðssetja Lagarfljótsorminn. Sú hugmynd hafi hins vegar fallið vegna viðbragða hér heima fyrir.
„Við Héraðsbúar berum ákveðna virðingu fyrir verunni í fljótinu og menn voru bara ekki tilbúnir til þess að fara út í svona massa markaðssetningu á orminum gagngert," sagði Skúli Björn.
Nú síðast skaut Lagarfljótsormurinn upp kollinum á fréttavef Daily Mail.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Japanar áhugasamir um orminn
,,Lagarfljótsormurinn“ á myndbandi?






