Víkingur vann Þór fyrir norðan

Víkingar gerðu góða ferð norður á Akureyri og unnu heimamenn í Þór - Mynd: Eva Björk
Áttunda umferð 1. deildar karla í knattspyrnu hófst í kvöld með tveimur leikjum.
Víkingur Reykjavík sigraði Þór Akureyri 2-0 fyrir norðan. Aron Elís Þrándarson skoraði fyrra mark Víkinga á 78. mínútu leiksins og Patrik Snær Atlason innsiglaði sigur liðsins með marki tíu mínútum síðar.
Þá unnu Haukar 2-1 sigur á ÍR á Ásvöllum. Magnús Páll Gunnarsson kom Haukum yfir á 40. mínútu en Viggó Kristjánsson jafnaði metin fyrir ÍR í upphafi síðari hálfleiks. Magnús Páll skoraði svo sitt annað mark fyrir Hauka á 64. mínútu og tryggði liðinu öll stigin.
Umferðinni lýkur með fjórum leikjum á morgun en þá mætast Leiknir og Tindastóll í Breiðholti, Þróttur Reykjavík tekur á móti KA á Valbjarnarvelli, Víkingur Ólafsvík fær BÍ/Bolungarvík í heimsókn og Höttur mætir Fjölni á Vilhjálmsvelli.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












