Wislawa Szymborska

Í Víðsjá í dag verður pólsku skáldkonunnar, Wislöwu Szymborsku minnst, en hún andaðist í Kraków um mánaðarmótin.
Hvað langar Framsóknarmenn að sjá í leikhúsinu? Leikhópurinn Sextán elskendur og Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hafa látið gera áhugaverða könnun á viðhorfum Íslendinga til leikhússins, en þær rannsóknir hafa leitt í ljós ýmislegt forvitnilegt sem Friðgeir Einarsson frá Sextán elskendum og þær Auður Magndís Leiknisdóttir og Heiður Hrund Jónsdóttir frá Félagsvísindastofnun spjalla um í Víðsjá í dag.
Sá glataði nefnist nýtt íslenskt leikverk sem leikfélagið Hugleikur frumsýnir á laugardaginn, höfundur verksins, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir og Ágústa Skúladóttir leikstjóri segja frá sýningunni.
Á laugardaginn verður haldin örverkahátíð með yfirskriftinni Feigð en þar sýnir Leikfélag Hafnarfjarðar sex frumsamin verk. Forvitnast verður um örverkin og feigðina í Víðsjá í dag.
Ásdís Sigmundsdóttir fjallar um bókina Kanil eftir Sigríði Jónsdóttur en hún er meðal þeirra bóka sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, í flokki fagurbókmennta.
Einnig verður hugað að tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld, en Osmo Vänskä heldur um tónsprotann í kvöld, á efnisskránni eru Sinfónía nr. 6 eftir Gustav Mahler og Sieben frühe Lieder eftir Alban Berg.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
VíðsjáTilkynna um bilaða upptöku








