Sköpunarmáttur næturinnar

Safnabelti, strætóskýli, systrasögur og sköpunarmáttur næturinnar í Víðsjá á fimmtudegi.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars kynnt til sögunnar safnabelti sem ætlað er ungu kynslóðinni og kynnt verður á safnanótt í Reykjavík á morgun. 

 Rætt verður við systurnar Söru og Svanhildi Vilbergsdætur sem opna sýningu á myndum sínum í Listasafni ASÍ á morgun.

Einnig verður rætt við ljósmyndarann Sigurð Gunnarsson, um upphaf ljósmyndunar og sérlegt áhugamál hans sem eru strætóskýli - en Sigurður opnar í dag sýningu á myndum sínum af strætóskýlum á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. 

 Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt ætlar að fara á stúfana með hlustendum Víðsjár á næstu vikum, og sækja heim byggingarnar sem eiga það sameiginlegt að lagt hefur verið upp með það markmið, að hver og ein þeirra skuli verða áberandi "kennileiti" í landslagi viðkomandi borgar.

 Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsöguna Andarslátt eftir þýska Nóbelverðlaunahöfundinn Hertu Muller, en bókin kom út í íslenskri þýðingu Bjarna Jónssonar á síðasta ári.

Hlustendur heyra viðtalsbrot við bandaríska fiðluleikarann Hilary Hahn sem kemur fram með Sinfoníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Hörpu í kvöld.

Og farið verður að gefnu tilefni í kjallara herragarðs í sunnanverðu Frakklandi þar sem sköpunarmáttur næturinnar var kannaður til hins ítrasta fyrir fjörutíu árum síðan.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Víðsjá

Tilkynna um bilaða upptöku