Óreglustikur

Í Víðsjá verður þess minnst í dag að 200 ár eru liðin frá fæðingu enska rithöfundarins Charles Dickens.
Gengið verður um sýningu Santiago Sierra sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi með Haraldi Jónssyni myndlistarmanni.
Rætt verður við Ásdísi Egilsdóttur en hún flytur erindi um handrit sem eitt sinn var í fórum Árna Magnússonar og geymir Margrétar sögu sem er þýdd saga um píslarvottinn heilaga Margréti sem var verndardýrlingur kvenna í barnsnauð.
Bandaríski listamaðurinn Mike Kelley lést fyrir aldur fram 31. janúar síðastliðinn. Rætt verður við Heklu Dögg Jónsdóttur myndlistarmann um framlag Kelley til samtímalistar.
Litið verður inn á sýninguna Óreglustikur í Gallerí Tukt, þar sem Arnljótur Sigurðsson tekst á við mælingu heimsins og Helgi Jónsson gagnrýnir tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fóru í síðustu viku og tónleika Kiri te Kanawa í Eldborgarsal Hörpu síðasta sunnudag.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
VíðsjáTilkynna um bilaða upptöku








