Næturútvarp á Öræfajökli

Eiríkur Guðmundsson pistlaði um forseta 1. febrúar í Víðsjá.
EF ég væri forseti Íslands, ágætu hlustendur, myndi ég líklega hefja mál mitt á þessum orðum: Ég er á leiðinni út úr dyrunum, sem gæti hins vegar hæglega þýtt, það getur vel verið að ég fari bara alls ekkert út. Eða ég myndi segja: Ég er staðráðinn í því að fara í bíó í kvöld, en innra með mér bæti ég við, þó er það ekki víst heldur, kannski geri ég eitthvað allt annað. Ég gæti líka sagt: Nú er það að detta á myrkrið, en bætt síðan við, fáeinum sekúndubrotum síðar: Nei, sko, dögun!
Síðan kæmu ritskýrendur fram í fjölmiðlum og segðu, hver á fætur öðrum: Forsetinn er meistari þversagnanna, þessa list kann enginn betur en hann, enda hefur hún skilað honum langt á alþjóðlegum vettvangi, forsetinn skilur þarna eftir glufu, við skulum halda okkur í þessari glufu eitthvað fram eftir árinu. Það er alls ekki víst að hann sé á leiðinni út úr dyrunum, og alls ekki víst að hann ætli sér í bíó, við skulum bíða átekta. Þarna er með öðrum orðum glufa, forsetinn skilur þarna eftir glufu, við skulum dvelja í henni, eitthvað frameftir ári.
Ágætu hlustendur, í dag er sléttur mánuður liðinn síðan forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti þjóðinni nýársávarp sitt, þar sem hann gaf til kynna, óljóst þó, að hann myndi EKKI sækjast eftir endurkjöri. Og það var eins og við manninn mælt, Ólafur hafði varla fyrr lokið máli sínu, en menn fóru að rýna í innihald ræðunnar, og komust að þeirri niðurstöðu, sem nú er orðin viðtekin, að forsetinn hafi þrátt fyrir allt skilið eftir glufu, það hafi með öðrum orðum, alls ekki verið ljóst, við hvað hann átti eða hvað hann ætlar sér. Sumir segja raunar, að forsetinn hafi talað svo óskýrt í téðri ræðu að hann hefði allt eins getað sent frá sér reykmerki uppúr dúfnakofa, farið með dróttkvæði, án skýringa, eða þulið upp tölur í óleystri sudokuþraut. En þar liggur hundurinn grafinn, forseti Íslands veit að með því að tala óskýrt, heldur hann athyglinni , sérfræðingar í glufum halda honum glóðvolgum inni á sviðinu, sem nær raunar alla leið til suðurskautsins, ef marka má síðustu fréttir, langt fram á vor, ef ekki hreinlega heil fjögur ár í viðbót. Það er reyndar rétt að taka það fram, að á meðal vorra gömlu manna er Ólafur Ragnar ekki einn um þörfina fyrir sviðsljós um þessar mundir, þessir gömlu menn ganga nú undir heitinu ,,Dauð hóra“, samkvæmt áramótaskaupinu, safna undirskriftalistum, og hafa það helst á stefnuskrá sinni að berjast á móti Evrópusambandinu. Þeir eru ansi víða þessir gömlu menn, meðal annars inni á þirnig, og hafa ansi hátt í þeirri viðleitni sinni, að berjast fyrir framtíð, sem verður ekki endilega þeirra.
Nú gæti maður hugsað með sér: Fyrst forseti Íslands talar ekki skýrar en raun ber vitni, þegar nóg hefði verið að segja svo sem eitt já, ég held áfram, eða nei, ég er hættur, við hverju má þá búast af þeim sem eru á gólfinu, hafa hvorki komið til Kína né á suðurkautið og eru alls ekki á leið heim í Framsóknarflokkinn?
Í dag er mánuður liðinn frá nýársávarpi forsetans, enn eru menn rýna í merkingu þess, og enginn þorir að nefna það, hvorki upphátt né í hljóði, að hann sé að íhuga framboð til forseta. Og hún vaknar spurningin, ef það er ekki nokkur leið að ráða í orð forsetans nema með aðstoð stjórnmálafræðinga eða þýðingavéla, er þá ekki meira en líklegt að túlkunarvandi spretti upp á fleiri stöðum? Svarið við þeirri spurningu er einfaldlega já, eins og dæmin sanna. Iðnaðarsalt merkir ekki endilega iðnaðarsalt þótt það standi skýrum stöfum á stórum pokum uppi í Ölgerð Egils Skallagrímssonar, einnig þar myndast glufa, sem eftirlitsaðilar halda opinni árum saman, svo iðnaðarsalt verður að endingu salt fyrir sjálfstæða Íslendinga. Og saklaust pipp á púðum reynist skeinuhætt, ef ekki hreinlega banvænt.
Orð forsetans eru sílikonpúðar, svo mjúk, að ef maður stingur puttanum í þau gefa þau eftir, og það myndast glufa. Og svo veikir eru menn fyrir þessum púðum að þeir hefja söfnun undirskrifta svo að hægt verði að leggja sjálft evrópusambandið að velli, með púðana að vopni. Þá gleymist að ákall samfélagsins er ekki síst fólgið í því að menn tali hreint út, valdastéttin á Íslandi skuldar þjóðinni nefnilega enn sögu, hún skuldar henni frásögn, hvort sú frásögn verður sögð fyrir rétti, í húsakynnum Alþingi, eða uppi á Öræfajökli, skiptir ekki öllu máli. Úr því sem komið er, og eftir Rannsóknarskýrslu, skuldar Ólafur Ragnar þjóðinni þó varla mikið meira en svo sem eins og eitt lítið nei, það nei sem lá raunar í loftinu í ávarpi hans fyrir sléttum mánuði. Kannski hvíslar hann því að mörgæsunum á suðurskautslandinu þar sem hann ku vera staddur um þessar mundir.
Eitt af málverkum Svavars Guðnasonar ber það góða nafn Næturútvarp á Öræfajökli. Það er gott heiti á óræðu málverki sem málað er til heiðurs Jóni Leifs. Verra er þegar helstu ráðamenn þjóðarinnar taka að fansa í fúgustíl, og standa fyrir næturúvarpi frá Öræfajökli um hábjartan dag og þegar best fer á því að þeir tali skýrt.
En ágætu hlustendur, ég ætla ekki að tala lengi í dag. Þó er það alls ekki víst. Það getur vel verið að ég tali langt fram á kvöld, ef það hentar mér og mínum hagsmunum, og ég sé fram á að þannig muni ég nýtast þjóð minni best, eða öllu heldur, að þannig muni þjóðin nýtast MÉR best.
Annars ber að taka það fram, og það er sjálfsagt að geta þess hér, að ýmsir halda því fram, að forsetinn hafi, þrátt fyrir allt fansið, og fúgustílinn, og næturútvarp frá Öræfajökli, verið býsna skýr í því ávarpi sem á mánaðarafmæli í dag. Allt annað, sé síðari tíma skáldskapur og forfúskun þeirra sem námu fræði sín af forsetanum forðum, skáldskapur sem – note bene – eigi þó mögulega rætur sínar að rekja, til Bessastaða. Og þá, ágætu hlustendur, erum við enn og aftur kominn í hring, maðurinn fer með okkur í hringi, og óefað eru margir eftir enn. Eftir á að hyggja, kann hér að hafa myndast glufa, kannski eru orð mín mjúk eins og sílikonpúðar, óræð eins og heitið iðnaðarsalt á sekkjum fyrir sjálfstæða Íslendinga, okkur sem, enn um sinn, að minnsta kosti, er gert að lifa í landi hinna gömlu, og þversagnanna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








