Mannréttindi nr.1, glamúr nr. 2

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Pál Óskar Hjálmtýsson tónlistarmann að gefnu tilefni um mannréttindi og glamúr, í framhaldi af umræðu um mannréttindabrot í Aserbaídsjan, þar sem Söngkvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram í maí.
Einnig verður hugað að bókmenntum á stríðstímum, og spurt: Hvernig lætur maður rödd sína heyrast á átakatímum? Hvernig skrifar maður um stríð þegar maður er sjálfur staddur í því? Fjallað verður um franska rithöfunda á tímum hernáms Þjóðverja og hvaða hlutverki þeir gegndu í því upplausnarástandi sem ríkti í Frakklandi í seinni heimstyrjöldinni. Vinátta og óvinátta sálfræðinganna Sigmund Freud og Carl Jung kemur einnig við sögu, en kvikmynd kanadíska leikstjórans David Cronenberg um þá félaga var nýlega tekin til sýningar í kvikmyndahúsinu BíóParadís við Hverfisgötu. Hugað verður að ljósmyndadögum sem hefjast í Reykjavík á morgun, og Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður segir frá „Leitinni að skjölum kvenna“, en hún heldur erindi á málþinginu Að skrifa konur inn í söguna, sem ýmsar stofnanir efna til næstkomandi föstudag, í framhaldi af umræðum um birtingarmyndir kynjanna í skyldunámsefni í sögu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
VíðsjáTilkynna um bilaða upptöku








