Listaverkið á tímum stafrænunnar

Kristín Atladóttir menningarhagfræðingur í viðtali í Víðsjá.

Á dögunum var haldið málþing á vegum Bandalags íslenskra listamanna (BÍL) um höfundarétt á neti og stafræna útgáfu en fundastjóri var Kristín Atladóttir sem er um það bil að ljúka doktorsritgerð frá Háskóla Íslands í menningarhagfræði. Öll viðskiptamódel eru að riðlast og ákveðin vanþekking ríkir á því hvernig við getum nýtt  okkur möguleika stafrænu tækninnar segir Kristín.  Því sé haldið fram að þeir sem tapi á stafrænu tækninni og afritunarmöguleikum hennar séu listamenn en raunin sé ekki alltaf sú. Ýmsar rannsóknir sýni að það séu fyrst og fremst stóru útgáfufyrirtækin missi spón úr sínum aski með tilkomu stafrænu tækninnar. Það þarf að endurskilgreina hagsmunaaðilana segir Kristín Atladóttir. Viðtalið við hana  má heyra hér.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Víðsjá, Menning

Tilkynna um bilaða upptöku